Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Að loknu Herrakvöldi Hauka

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarUndirritaður vill færa þeim Úlfari Eysteinssyni og hans félögum á 3 frökkum þakkir fyrir FRÁBÆRAN mat á Herrakvöldiu Hauka sem haldið var í kvölld. 

Tel mig tala fyrir munn allra þeirra sem tóku þátt í Herrakvöldi Hauka í kvöld, hvalkjötið sem fram var borið í kvöld var hreint listaverk hvað bragð og framleiðslu áhrærir. Þeir sem ekki mættu á kvöldið misstu af miklu!i

Vil einnig þakka Kristjáni Loftsyni í Hval hf fyrir að hafa látið Haukum í té slíkt úrvals kjöt til þeirrar sælkeraveislu sem haldin var í kvöld.

Þá má ekki gleyma Jóhannesi eftirhermu sem skemmti mönnum vel og fékk hláturtaugar Haiukamanna til að virka vel. 

Vonast til að áframhald verði á slíkum veislum hjá Haukum!

Takk fyrir mig!

Samúel Guðmundsson 

formaður Körfuknattleiksdeildar Hauka

 

Haukar - FH á morgun í N1 deild kvenna!

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar og FH mætast á morgun, laugardag í N1-deild kvenna í handbolta kl.16:00 í Schenckerhöllinni að Ásvöllum. Leikurinn er báðum liðum mikilvægur í baráttunni um sæti í 6-liða úrslitakeppni sem fram fer í vor og auðvitað er hann einnig mikilvægur að því leiti að hér er að sjálfsögðu um að ræða nágrannaslag af bestu gerð og þá viljum við alltaf vinna! Stelpurnar okkar þurfa á stuðningi okkar að halda og því er nauðsynlegt að fjölmenna á Ásvelli á laugardaginn og hvetja stelpurnar til sigurs!

 

Tveir Hafnarfjarðarslagir framundan í handboltanum

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÍ dag var dregið til undanúrslita í Eimskipsbikarkeppni karla í handbolta og fáum við Haukar nágranna okkar í FH í heimsókn í Schenckerhöllina að Ásvöllum. Áætlað er að spila leikinn þann 13.febrúar næst komandi. Fjórum dögum fyrr, 9. febrúar fáum við FH-inga hins vegar í heimsókn í N1-deildinni þannig að tveir Hafnarfjarðarslagir eru framundan hjá strákunum.

N1-deildin rúllar fljótlega af stað eftir hlé vegna Evrópumótsins í handbolta og eiga Haukar leik við Valsara í Vodafonehöllinni að Hllíðarenda þann 2.febrúar, er það fyrsti leikur liðsins í rúman mánuð eða síðan 28. desember sl. þegar Haukar lögðu FH af velli í úrslitaleik Deildarbikarsins. 

 

Haukastelpur með öruggan sigur á Val

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukastelpur unnu í kvöld öruggan átján stiga sigur á Val, 84-66, í Shenkerhöllinn að Ásvöllum í kvöld. Með sigrinum endurheimti liðið þriðja sætið í Iceland Express deild kvenna í körfubolta og náðu 6 stiga forskoti á Snæfell sem er í 5 sæti.

Leikurinn í kvöld var jafn fyrstu 30 mínúturnar þó Haukastelpur væru sterkari og sýndu meiri breidd. Bjarni þjálfari hafði notað 10 leikmenn í fyrri hálfleik. Haukastelpur settu síðan í fluggír í fjórða leikhlutanum og stungu Val af en þær unnu 4 leikhluta með 19 stiga mun, 28-9.

Lesa meira...
 

Leikur í kvöld hjá körfuboltastelpunum!

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Ágæta Haukafólk.

Í dag, miðvikudaginn 25.janúar kl. 19:15, taka Haukar á móti Valsstúlkum á Ásvöllum.  Lið Hauka hefur verið á mikilli siglingu undanfarið, komnar í undanúrslit í bikar og eru í mikilli baráttu um að komast í úrslitakeppnina í Iceland Express deildinni.  Því miður töpuðu Haukastúlkur fyrir Val á heimavelli þegar liðin mættust fyrir áramót, en við látum slíkt ekki koma fyrir aftur, sigrum og tökum sæti nr. 3 í deildinni aftur frá KR.

Sjáumst á Ásvöllum í kvöld og hvetjum Hauka til sigurs.

Kaffi og með því í boði fyrir Hauka í horni í hálfleik.

Áfram Haukar! Kvennaráðið

 

 

Spilakvöldi frestað

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarSpilakvöldi frestað.

Spilakvöldi Öldungaráðs sem vera átti í kvöld er frestað vegna ófærðar og slæmrar veðurspár.

 

Herrakvöld Hauka

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Herrakvöld 2012

 

Aron Rafn inn í landsliðið

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 Aron Rafn Eðvarðson markmaður meistaraflokks Hauka í handbolta hefur verið kallaður inn í landsliðið sem leikur þessa stundina á Evrópumeistaramótinu í Serbíu.

Lesa meira...
 

Stórleikur hjá stelpunum í körfuboltanum á laugardag!

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Poweradebikarinn 8-liða úrslit
Ágætu Haukafélagar, nú heldur baráttan áfram í bikarnum og mótherjar okkar í 8-liða úrslitum á laugardaginn kl.16:00 er lið Hamars frá Hveragerði. Haukastúlkur sýndu fádæma kraft í 16-liða úrslitum gegn KR þar sem þær snéru vonlausri stöðu í framlengingu og sigur.

Vonandi tekst stelpunum að spila toppleik gegn Hamri því Hvergerðingarnir eru sýnd veiði en ekki gefin og hafa verið að endurheimta góða leikmenn undanfarið úr meiðslum ásamt því að vera með tvo öfluga erlenda leikmenn. Það er mjög mikilvægt að fá heimaleiki í bikarkeppninni en það verður líka að nýta það til hins ítrasta og styðja við stelpurnar í bráttunni.

Allt kapp verður lagt á að gera umgjörð leiksins sem besta og væntanlega verður eitthvað um óvæntar uppákomur, bæði innan- og utanvallar. Svo berjum við bumbur og notum klöppur ásamt góðum skammti af jákvæðum hvatningarópum til að tryggja stelpurnar inn í undanúrslit.

Allir í Schencker-höllina á Ásvöllum kl.16:00 á laugardag. Haukar í horni fá að sjálfsögðu eitthvað góðgæti í VIP stúkunni og því margt í boði á þessum sankallaða stórleik! ÁFRAM HAUKAR!!!

 

Haukar með öruggan sigur á Fjölni

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hope ElamHaukar sigruðu Fjölni örugglega í Grafarvoginum í kvöld. Með sigrinum styrktu Haukar stöðu sína í 3 - 4 sæti Iceland Expressdeildarinnar.

Jafnt var fyrstu 5 mínútur leiksins en þá breyttu Haukar stöðunni á næstu 4 mínútum úr 9-8 fyrir Fjölni í 22-11 fyrir Hauka.

Í fyrsta hluta leiksins hafði Bjarni þjálfari notað 10 leikmenn sem skilað höfðu Haukum 24-15 forystu. Stigaskor var að dreyfast vel á Haukastelpur og greinilegt að þær ætluðu sér sigur í leiknum.

 

Lesa meira...
 
Borði

Vefpóstur

Nafn:
Lykilorð:

Könnun

Hvernig verður gengi Hauka í IE-deild kk í vetur
 
Borði
Borði


Molar

Meistaraflokkslið Hauka í handbolta varð Íslandsmeistari á fjórða íslandsmótinu í handknattleik árið 1943, og urðu þar með fyrsta hafnfirska félagið til að verða Íslandsmeistari í flokkaíþrótt.

samstarfsadilar

Borði