Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Knattspyrnudeild
Fréttir frá knattspyrnudeild Hauka

Næstu leikir í fótboltanum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Fyrir Hauka-fólk sem er á faraldsfæti næstu daga þá á meistaraflokkur karla í fótboltanum krefjandi útileiki næstu daga.  Í kvöld spilar liðið í Stykkishólmi gegn Snæfelli í Bikarkeppni KSÍ en lið Snæfells leikur í 3.deild karla og hefst leikurinn kl. 20:00.  

Á laugardaginn kl. 14:00 mætum við svo Hetti og fer leikurinn fram á Fellavellinum á Egilsstöðum. Sá leikur er í 2.umferð 1.deildar karla en bæði lið unnu leiki sína í fyrstu umferð.

Stelpurnar hefja svo leik hér á höfuðborgarsvæðinu kl.19:15 á föstudag þegar þær mæta ÍR í Breiðholtinu. 

Við minnum einnig á að þá sem hafa áhuga, á að staðan í öllum leikjum Hauka sem og aðra félaga er uppfærð á úrslitaþjónustusíðunni, Urslit.net um leið og mörk eru skoruð í leikjum.

Lesa meira...
 
aobjecta

Stelpurnar töpuðu í úrslitaleik Lengjubikarsins

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar og ÍA mættust á Akranesvelli á föstudagskvöldið sl. í úrslitaleik Lengjubikarkeppni kvenna C-deildar í knattspyrnu. Fór svo að það voru heimastúlkur í ÍA sem höfðu sigur 1-0 og kom markið strax á 2. mínútu leiksins. ÍA var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér mörg færi, í síðari hálfleik voru okkar stúlkur hins vegar sterkari aðilinn en sköpuðu sér ekki nægjanlega mörg færi. Besta færi Hauka í leiknum kom í viðbótartíma en vörn ÍA var vel á verði og tókst að bægja hættunni frá á síðustu stundu.

Lesa meira...
 

Haukasigur í fyrstu umferð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar sigruðu Tindastól í fyrsta leik sumarsins sem fram fór á Ásvöllum í gær. Haukar skoruðu tvö mörk gegn engu marki gestanna.

Leikurinn var sýndur í beinni á SportTV og nú er hægt að sjá mörk Hauka á netinu, með því að smella hér sem og viðtal við Guðmund Sævarsson fyrir leik og Sigurbjörn Hreiðarsson eftir leik.

Hilmar Trausti Arnarsson kom Haukum yfir í fyrri hálfleik með marki beint úr hornspyrnu og Magnús Páll Gunnarsson gulltryggði siðan sigurinn með marki í uppbótartíma, eftir sendingu frá Hilmari Trausta.

Ólafur Jóhannesson var fjarri góðu gamni í gær vegna veikinda og í hans stað stýrðu Guðmundur Viðar Mete og Guðmundur Sævarsson liðinu af hliðarlínunni en þeir eru báðir meiddir.

Lesa meira...
 

Haukar - Tindastóll á morgun | Valur Fannar í banni

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarNú er innan við sólarhringur að 1.deild karla hefjist og er orðin mikil tilhlökkun í herbúðum Hauka fyrir fyrsta leik.

Haukar mæta nýliðum Tindastóls á Ásvöllum, eða Schenkervellinum á morgun og hefst leikurinn klukkan 14:00. Frítt er á völlinn í boði Rio Tinto Alcan. 

Lítið eru um meiðsli fyrir leikinn á morgun, þó vantar tvo miðverði í hópinn sem og Guðmund Sævarsson sem brotnaði á fæti á æfingu fyrir um mánuði síðan og mun ekki spila knattspyrnu á næstunni.

 

Lesa meira...
 

Stelpurnar spila til úrslita í Lengjubikarnum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukastelpur leika annað kvöld (föstdagskvöld) kl.19:00 á Akranesi við heimastúlkur í úrslitaleik C-deildar Lengjubikars kvenna í fótbolta. Stelpurnar okkar unnu sinn riðil sannfærandi og höfðu svo 2-0 sigur á Hetti í undanúrslitum sl. laugardag með mörkum frá Þórdísi Önnu Ásgeirsdóttur og Kristínu Ösp Sigurðardóttur, en sú síðarnefnda hefur verið afar iðin við kolann í vetur og nánast skorað eða lagt upp mark í hverjum einasta leik.

Lesa meira...
 


Borði


Molar

Haukar voru stofnaðir 12. apríl 1931.

samstarfsadilar

Borði