Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Haukar í horni

Haukar í horni er stuðnings- og styrktarfélag Hauka. Einstaklingum og fyrirtækjum gefst báðum kostur á því að gerast meðlimir í Haukum í horni. Félagið var stofnað árið 1990 af handknattleiksdeild Hauka með það markmið að fjármagna komu tékkneska landsliðsmannsins Petr Baumruk til Hauka. Má segja að þetta framtak hafi hitt beint í mark. Bæði reyndist Baumruk okkur góður og mikilvægur leikmaður og fyrirmyndar félagi. Einnig hefur myndast góður félagsskapur og mikil stemning í kringum Hauka í horni. Stuðnings- og styrktarfélagið er þvi orðið hornsteinn í starfi Hauka.

Handknattleiks-, knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildirnar hafa nú tekið höndum saman um rekstur meistaraflokkana. Meistaraflokkar félagsins verða því framvegis reknir saman undir Rekstrarfélagi Hauka.  Ákveðnum hluta af tekjum Hauka í horni er ráðstafað til barna og unglingastarfs félagsins með kaupum á boltum, búningum og öðrum búnaði.

Það eru mikil gleðitíðindi fyrir okkur Haukafólk að við séum að sameinast undir einum hatti og verður hið sterka stuðnings- og styrktarfélag Haukar í horni því félagið okkar allra!

Hvað er innifalið í pakkanum, Haukar í horni?

Haukar í horni - Gullfélagi

 - Ársmiði á alla deildarleiki Hauka í meistaraflokki karla og kvenna(fótbolti, handbolti og körfubolti). Gildir ekki á bikarleiki, evrópuleiki og oddaleiki í úrslitakeppni

 - Merkt sæti í stúkunni (inni eða úti) eða skófar á gólfi

 - Aðgangur að VIP herbergi á leikdag hjá öllum deildum

 - Léttar veitingar á leikdag i VIP herbergi

 - Þjálfarateymið leggur línurnar fyrir leik og fer yfir stöðuna í hálfleik

 - Reglulegur tölvupóstur með stórum og smáum fréttum um meistaraflokkana og starfið

 - Verð: 3.550 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári. Hjón: 5.900 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári

Haukar í horni - Silfurfélagi

 - Ársmiði á alla deildarleiki Hauka í meistaraflokkikarla og kvenna(fótbolti, handbolti og körfubolti). Gildir ekki á bikarleiki, evrópuleiki og oddaleiki í úrslitakeppni

 - Aðgangur að VIP herbergi á leikdag hjá öllum deildum

 - Léttar veitingar á leikdag i VIP herbergi

 - Þjálfarateymið leggur línurnar fyrir leik og fer yfir stöðuna í hálfleik

 - Reglulegur tölvupóstur með stórum og smáum fréttum um meistaraflokkana og starfið

 - Verð 2.750 krónur á mánuði á ári. Hjón: 4.400 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári

Samstarfsaðilar þar sem Haukar í horni njóta sérkjara:

 

A4 Skrifstofa og skóli

Við Smáratorg í Kópavogi

Afsláttur 15%  (gildir ekki af öðrum tilboðum og fartölvum)

 

Apótek Hafnarfjarðar

Fjóluvöllum

Afsláttur 10%  (gildir ekki af lyfseðilskyldum lyfjum)

Flügger litir

Dalshrauni 13

30-45% afsláttur (gildir ekki af tilboðum)

Maður Lifandi

Hafnarborg, Hæðarsmára og í Borgartúni

Afsláttur 10%

 

Myndform ehf.

Trönuhrauni 1

20% afsláttur af þjónustu vegna yfirfærslu mynd­banda yfir á DVD.

Nýform ehf.

Reykjavíkurvegi 66

Afsláttur 7%

N1

Sérkjör á öllum stöðvum og að auki fá Haukar hluta af lítraverði sé verslað á nýju bensínstöðinni á Ásvöllum

Haukar í horni þurfa að sækja um N1 kortið á heimasíðu N1, n1.is. Þegar spurt er um hópanúmer setja þá 398.

RB rúm ehf.

Dalshrauni 8

Afsláttur 5%

Rafport ehf.

Nýbýlavegi 14

Afsláttur 10%

Securitas hf.

Síðumúla 23

Afsláttur 10%

Tilveran, veitingahús

Linnetsstíg 1

Afsláttur 15% (af matseðli)

Wilson´s Pizza

Eddufell, Gnoðarvogur, Ánanaust

Afsláttur 15% (af matseðli)

 

 Allar upplýsingar um Hauka í horni veita:

Ásdís Geirsdóttir s: 698-7182 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Gréta Grétarsdóttir s: 660-2767 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Hægt er að skrá sig hér í Hauka í horni og einnig með því að senda póst á: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 
Borði


Molar

19. janúar 1938 var kvennaflokkur Hauka stofnaður af 41 stúlku.  Kvennadeildin var fjörefni félagsins á þeim tíma og héldu stúlkurnar merki Hauka hátt á lofti. (Heimild: Haukar í 60 ár, bls. 21-22)

samstarfsadilar

Borði