Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Íþróttaskóli Hauka - sumar 2012

HaukarÍþróttaskóli Hauka 2012

Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2012 fyrir börn fædd 1997-2010 með svipuðu sniði og áður.  Skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007 og er óhætt að segja að börn og foreldrar hafi tekið þessu framtaki Hauka mjög vel. Um 1200 börn sóttu skólann hér síðasta sumar í yndislegu veðri eins og alltaf er á Ásvöllum. Gísli Guðmundsson, yfirþjálfari í handbolta og íþróttafræðingur mun sjá um skólann í sumar eins og undanfarin sumur.

Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum. Allir kennarar skólans hafa mikla reynslu af þjálfun yngri barna.

Boðið er upp á gæslu frá 08:00-09:00 á morgnanna, einnig er boðið upp á heitan hádegismat fyrir þá sem eru allan daginn hjá okkur. Þetta sumarið er gæsla innifalin í verði.

Skólinn er opinn fyrir alla Hafnfirðinga og nærsveitarmenn. 

Í sumar bjóðum við upp á tvö nýja skóla:

Tækniskóli í knattspyrnu (Nýjung)
Í ár ætlum við að bjóða upp á tækniskóla í knattspyrnu fyrir iðkendur 10-15 ára. Skólinn er byggður upp á tækniæfingum og er gert ráð fyrir að iðkendur séu að æfa knattspyrnu. Sá sem fer fyrir skólanum er Ágúst Haraldsson, íþróttafræðingur og þjálfari hér hjá Haukum. Ágúst er margreyndur þjálfari, menntaður íþróttafræðingur og er með 5.stig í þjálfun.
Hámark iðkenda á hvert námskeið er 20. 
Tækniskólinn er kl. 10:00-13:00 og er gjaldið 10.000 fyrir vikuna. 


Tækniskóli í handbolta (Nýjung)
Í ár ætlum við að bjóða upp á tækniskóla í handbolta fyrir iðkendur sem eru að fara í 7.-10. bekk. Skólinn er byggður upp á tækniæfingum og er gert ráð fyrir að iðkendur séu að æfa handbolta. Gert er út á einstaklinginn og að þróa hans getu. Fyrir skólanum fer Gísli Guðmundsson, íþróttafræðingur og yfirþjálfari handknattleiksdeildar.
Tækniskólinn er kl. 10:00-13:00 og er gjaldið 10.000 fyrir vikuna. 
Hámark iðkenda á hvert námskeið er 15.

Þessi skólar eru í boði sumarið 2012:

Fjölgreinaskóli Hauka fyrir 5-12 ára (2000-2006)
Námskeið fyrir hádegi allt sumarið.
Námskeið eftir hádegi og allan daginn 11. júní – 6. júlí og 7.- 17. ágúst.


Fjölbreytt íþrótta- og leikjanámskeið við allra hæfi, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna íþróttaiðkendur. Skipt er í hópa eftir aldri, getu og vinatengslum svo að allir fái að njóta sín. Öðru hverju er dagskráin brotin upp og farið í sundferð, gönguferð, hjólatúr o.s.frv. sem verður þá auglýst með góðum fyrirvara.

Fótboltaskóli Hauka fyrir 5-12 ára (2000-2006)
Námskeið fyrir hádegi allt sumarið.
Fótboltaskóli Hauka verður starfræktur í allt sumar. Fjölbreyttar æfingar fyrir þá sem vilja vera í fótbolta meira og minna allan daginn.
Reynslumiklir leiðbeinendur fara fyrir námskeiðinu.

Íþróttaleikskólinn fyrir 2-5 ára (2006-2010)
Námskeið fyrir hádegi 9.júlí - 2. ágúst.  

Íþróttaleikskólinn verður í boði í 4 vikur þegar leikskólarnir fara í sumarfrí. Námskeiðið verður í anda leikjaskóla barnanna sem er starfræktur á veturna hjá Haukum þar sem markmiðið er að börnin fái jákvæð og skemmtileg fyrstu kynni af ýmsum leikjum og íþróttum. Skólinn fer fram inni í íþróttasalnum.
Foreldrar eru hjartanlega velkomnir að vera með börnum sínum.

Körfuboltaskóli fyrir 5-12 ára (2000-2006)
Námskeið fyrir hádegi 11.-29. júní og 7.-17. ágúst

Körfuboltaskólinn er fyrir þá sem langar að bæta við sig kunnáttu í körfubolta. Settar verða upp æfingar sem auka boltafærni, farið í leiki og spilaður körfubolti. Það eru allir velkomnir, byrjendur sem lengra komnir.


Handboltaskóli fyrir 5-12 ára 
(2000-2006) 
Námskeið fyrir hádegi  7.-17. ágúst 

Handboltaskólinn er fyrir þá sem langar að bæta við sig kunnáttu í handbolta. Settar verða upp æfingar sem auka boltafærni, farið í leiki og spilaður handbolti. Það eru allir velkomnir, byrjendur sem lengra komnir.


Hreystiskóli (1999-2001)
Námskeið frá kl. 10:00-13:00 í vikum 2, 3 og 9.

Boðið er upp á Hreystiskóla fyrir 5.-7. bekk grunnskóla. Þetta verður skemmtilegt námskeið undir handleiðslu Ragnheiðar Berg, þjálfara og nemanda í íþróttafræðum við Háskólann í Reykjavík.  
Farið verður í grunngreinar hreysti, æft þrek og þol og farið í vettvangsferðir. Farið verður á Skólahreystibrautina í Garðabæ tvisvar sinnum á námskeiðinu annaðhvort hjólandi eða með strætó.
Hreystiskólinn verður í boði í vikum 2,3 og 9 - kl. 10:00-13:00 og kostar 10.000 vikan en 8.000 fyrir fjögurra daga viku, innifalið í því er ávaxtastund og ferðir milli staða.
Hámarksfjöldi á námskeiðið er 20.


Tækniskóli í handbolta (Nýjung)
Námskeið frá kl. 10:00-13:00 í vikum 9, 10 og 11.

Í ár ætlum við að bjóða upp á tækniskóla í handbolta fyrir iðkendur sem eru að fara í 7.-10. bekk. Skólinn er byggður upp á tækniæfingum og er gert ráð fyrir að iðkendur séu að æfa handbolta. Gert er út á einstaklinginn og að þróa hans getu. Fyrir skólanum fer Gísli Guðmundsson, íþróttafræðingur og yfirþjálfari handknattleiksdeildar.
Tækniskólinn er kl. 10:00-13:00 og er gjaldið 10.000 fyrir vikuna, 8.000 fyrir fjögurra daga viku. 
Hámark iðkenda á hvert námskeið er 15.


Tækniskóli í knattspyrnu (Nýjung)
Námskeið frá kl. 10:00-13:00 í vikum 1,2 og 3.

Í ár ætlum við að bjóða upp á tækniskóla í knattspyrnu fyrir iðkendur 10-15 ára. Skólinn er byggður upp á tækniæfingum og er gert ráð fyrir að iðkendur séu að æfa knattspyrnu. Sá sem fer fyrir skólanum er Ágúst Haraldsson, íþróttafræðingur og þjálfari hér hjá Haukum. Ágúst er margreyndur þjálfari, menntaður íþróttafræðingur og er með 5.stig í þjálfun.
Hámark iðkenda á hvert námskeið er 20. 
Tækniskólinn er kl. 10:00-13:00 og er gjaldið 10.000 fyrir vikuna, 8.000 fyrir fjögurra daga viku. 


Vikur sem í boði eru:
О   1.   11. – 15. júní
О   2.   18. – 22. júní 
О   3.   25. – 29. júní
О   4.   2. – 6. júlí
О   5.   9. – 13. júlí
О   6.   16. – 20. júlí
О   7.   23. – 27. júlí 
О   8.   30. – 2. ágúst (4 dagar)
О   9.    7. – 10. ágúst (4 dagar)
О   10.  13. – 17. ágúst

О   11.  20.-23. ágúst (4 dagar) - hér er einungis um að ræða Tækniskóla í handbolta


Hádegismatur
Hádegismaður er einungis í boði fyrir þá sem eru allan daginn og er hann innifalin í verði.

Þátttökugjöld
Heilsdagsskóli kostar 8.000 með mat - vikan.
Hálfdagsskóli kostar 4.000 - vikan.

Hreystiskólinn kostar 10.000 vikan en 8.000 fjögurra daga vika, með ávaxtahressingu.
Tækniskólinn kostar 10.000 vikan en 8.000 fjögurra daga vika.


Skráningar
Tekið verður við skráningum á heimasíðu félagsins haukar.is frá og með 10. maí. 
Við skráningu þarf að ganga frá greiðslu. 
Hægt er að greiða með kreditkorti eða millifærslu. Ef greitt er með millifærslu þarf að senda kvittun á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , takið fram í skýringu nafn barns, hvaða skóli varð fyrir valinu og hvaða tímabil. Millifærslan þarf að koma strax við skráningu, annars er skráning ekki gild og verður felld út.

Millifærslureikningur er:
0140-26-000626
kt. 700387-2839

 

 
Borði


Molar

Haukar voru stofnaðir 12. apríl 1931.

samstarfsadilar

Borði