Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Körfuknattleiksdeild TVÍHÖFÐI: Heimaleikir hjá stelpunum í dag

TVÍHÖFÐI: Heimaleikir hjá stelpunum í dag

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÞað er glæsileg dagskrá í boði í dag í Schenker-höllinni þegar kvennalið Hauka í körfu- og handbolta spila heimaleiki.

Herlegheitin hefjast kl. 13.30 þegar körfuboltastelpurnar taka á móti Njarðvík í alvöru toppslag í Iceland Express-deild kvenna. Njarðvík er í 2. sæti deildarinnar og Haukar í því þriðja. Þessi lið etja einnig kappi á mánudag í undanúrslitum Powerade-bikars kvenna og má því segja að leikur dagsins verði forsmekkur þess sem við sjáum á mánudag en þá verður leikið í Njarðvík.

Handboltastelpurnar stíga svo á stóra sviðið kl. 16.00 þegar þær taka á móti toppliði Fram í N1-deild kvenna. Framliðið er á toppi N1-deildarinnar ásamt Val og því fá stelpurnar okkar afar verðugt verkefni í dag þegar Framstúlkur koma í Schenker-höllina.

Allir að koma í Schenker-höllina í dag og hvetja Hauka til sigurs.

Áfram Haukar

 
Borði
Borði


Molar

Haukar voru stofnaðir 12. apríl 1931.

samstarfsadilar

Borði