Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Leikjaskóli barnanna

Leikjaskóli barnanna

Leikjaskóli barnanna hefst laugardaginn 14. janúar á vorönn 2012.
Leikjaskóli barnanna er fyrir aldurinn 2-5 ára. Markmið leikjaskólans er að kynna iðkendum fyrir íþróttasalnum og áhöldum þar inni. Þá er farið í grunn hinna ýmsu greina ásamt grunnhreyfingum barna. Hér er lagt mikil áhersla á að iðkendur fái að njóta sín í faðmi forráðamanna sem eru með þeim allan tímann til halds og trausts. Hér fá börnin samverutíma í íþróttasalnum með forráðamönnum svo og undirbúningur fyrir skólavist er hafin.  
 
Yngri hópur, 2-3 ára (fædd 2008-2009) á laugardögum kl. 9:30 - 10:15 í íþróttahúsinu á Ásvöllum. 
Eldri hópur, 4-5 ára (fædd 2006-2007) á laugardögum kl. 10:15 - 11:00 í íþróttahúsinu á Ásvöllum.
Blandaður tími fyrir öll börn fædd 2006-2009, í samkomusalnum á Ásvöllum á miðvikudögum kl. 16:15-17:00.
Þjálfari leikjaskólans er Albert V. Magnússon en hann hefur starfað hjá Haukunum undanfarin ár við yngri barna þjálfun.
 
Öll börn eru hjartanlega velkomin.

Dagskrá leikjaskólans á vorönn er eftirfarandi:
1. tími  14.jan. Körfuboltar, þrautabraut og æfingar
2. tími  21.jan. Fótboltar, þrautabraut og dýnuæfingar
3. tími  28.jan. Handboltar, þrautabraut og hringir
4. tími  4.feb.  Blandaðir boltar, tarsanbraut og æfingar
5. tími  11.feb. Körfuboltar, þrautabraut, klemmur og grjónapokar
6. tími  18.feb. Fótboltar, þrautabraut og æfingar
7. tími  25.feb. Handboltar, þrautabraut og pappírsboltar
8. tími  3.mars Blandaðir boltar, þrautabraut og ratleikur
9. tími  10.mars TÍMI FELLUR NIÐUR - HÚSIÐ UPPTEKIР
10. tími 18.mars - sunnudagur -  Sundtími (Suðurbæjarlaug)
11. tími 24.mars - Útitími (nánar auglýst síðar)
12. tími 31. mars - Handboltar, þrautabraut og æfingar
13. tími  7. apríl  PÁSKAFRÍ 
14. tími  14.apríl  Blandaðir boltar, þrautabraut og badminton
15. tími  21.apríl  Körfuboltar, þrautabraut og æfingar
16. tími  28.apríl  FJÖLSKYLDUTÍMI   
 
Í fjölskyldutímanum mæta yngri börnin á sínum tíma kl. 09:30 en eldri börnin kl. 10:00 þar sem góður gestur kemur í heimsókn.
Systkini, ömmur, afar, frændi og frænka velkomin.
Boðið verður upp á veitingar að tíma loknum. 
 
Borði


Molar

Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma.  Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum.  Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði. 

samstarfsadilar

Borði