Uppskeruhátið yngri flokka handknattleiksdeildar
Mánudagur, 14 Maí 2012 13:06
Guðbjörg Norðfjörð
Uppskeruhátíð yngri flokka í handknattleik verður á morgun þriðjudag og hefst stundvíslega kl. 18:00.
Veitt verða verðlaun fyrir uppskeru tímabilsins og að því loknu verða í boði pyslur og svali.
Við hvetjum alla til að mæta, ömmur, afa, mömmur, pabba, systkini og alla hina.
Síðast uppfært ( Mánudagur, 14 Maí 2012 13:12 )
Uppskeruhátíð yngri flokka körfuknattleiksdeildar
Fimmtudagur, 10 Maí 2012 15:21
Guðbjörg Norðfjörð
Uppskeruhátíð yngri flokka körfuknattleiksdeildar verður haldið mánudaginn 14.maí hér í salnum á Ásvöllum.
Hófið hefst stundvíslega kl. 18:00 með hinum árlega BOLLAMEISTARA. Þá verða afhent verðlaun fyrir uppskeru vetrarins og að lokum fá allir grillaðar pylsur og svala.
Allir velkomnir, iðkendur, foreldrar, ömmur, afar og allir hinir.
Áfram Haukar
Lokað 1.maí
Mánudagur, 30 Apríl 2012 14:24
Guðbjörg Norðfjörð
Íþróttahús Ásvalla er lokað á morgun 1.maí.
Hummel söludagar Hauka - ný dagsetning
Miðvikudagur, 04 Apríl 2012 15:24
Guðbjörg Norðfjörð

Söludagar Hummel verða haldnir 16.-18. apríl næstkomandi (sjá breytta dagsetningu). Opið verður frá kl. 17:00-19:00 alla dagana. Hægt verður að kaupa fótboltabúning, peysur, sokka, buxur, töskur, fótbolta, æfingasett og vindjakka. Allur ágóðinn af sölunni mun renna til Hauka.
Söludagar Hummel
Föstudagur, 30 Mars 2012 15:20
Guðbjörg Norðfjörð
Söludagar Hummel verða haldnir 10.-12. apríl næstkomandi hér á Ásvöllum. Opið verður frá kl. 17:00-19:00 alla dagana.
Hægt verður að kaupa fótboltabúning, peysur, sokka, buxur, töskur, fótbolta, æfingasett og vindjakka.
Sent verður á foreldra í næstu viku það sem er í boði og verð.
Allur ágóðinn af sölunni mun renna til Hauka.
Síðast uppfært ( Föstudagur, 30 Mars 2012 23:03 )
Ábending Rannsóknarnefndar umferðaslysa
Fimmtudagur, 29 Mars 2012 14:42
Guðbjörg Norðfjörð

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur borist skýrsla Rannsóknarnefndar umferðaslysa vegna banaslyss sem varð á Eyjafjarðarbraut 20. janúar 2011. Í skýrslunni kemur fram ábending til þeirra sem stunda útihlaup um að skoða öryggismál sín. Lögð er áhersla á að viðkomandi klæðist endurskinsvesti eða jakka. Þá bendir nefndin á að ljósgeisli aðalljósa bifreiða og bifhjóla lýsir niður á veginn. Af þeim sökum er ráðlegt að vera með endurskin í ökklahæð eða neðst á kálfa því að sú staðsetning kemur fyrr inn í ljósgeisla aðalljósa bifreiða en endurskin á efri hluta líkamans. Hlauparar sem skokka á þjóðvegum ættu einnig að skoða hvort mögulegt sé að hlaupa utan þjóðvegar, sérstaklega í rökkri og myrkri. ÍSÍ leggur áherslu á að ofangreindri ábendingu verði komið á framfæri við alla þá sem þið teljið að hún eigi erindi við. Mikilvægt er að huga ætíð vel að öryggismálum íþróttaiðkenda og vera sífellt vakandi fyrir aðstæðum sem geta skapað hættu.
Umsóknarfrestur vinnuskólans í sumar
Fimmtudagur, 15 Mars 2012 13:25
Guðbjörg Norðfjörð
Umsóknarfrestur til að sækja um í vinnuskólanum í sumar er til 4. apríl fyrir þau sem eru 17 ára og eldri þ.e. fædd 1995 eða fyrr. Eftir það verður ekki tekið við umsóknum.
Þeir sem eru yngri eða í 8. - 10. bekk geta sótt um vinnu í gegnum skólann sinn en umsóknir þess efnis verða komnar í skólana eftir páska.
Ef áhugi er fyrir hendi að vinna í Íþróttaskóla Hauka í sumar þarf að óska eftir því sérstaklega á umsókninni. Við getum ekki lofað vinnu en við munum skoða allar umsóknir. Við fáum ákveðin mörg stöðugildi og þurfum því að velja inn - þau sem hafa verið hjá okkur áður og staðið sig vel eiga góða möguleika.
|
Kynningarfundur Afrekssviðs Hauka og Flensborgarskóla
Miðvikudagur, 07 Mars 2012 13:26
Guðbjörg Norðfjörð
Mánudaginn 12. mars verður kynning á Ásvöllum á Afrekssviði Hauka og Flensborgarskóla kl. 21:15.
Kynningin mun taka um 30 mínútur og er sérstaklega hugsuð fyrir iðkendur, stráka og stelpur, Hauka fædda 1996 og forráðamenn þeirra.
Aðrir áhugasamir um afreksstarf Hauka eru að sjálfsögðu velkomnir á fundinn.
Bikarúrslitaleikurinn hefst kl.16:00 á laugardag í Laugardalshöll
Föstudagur, 24 Febrúar 2012 23:12
Jón Stefán Jónsson
Síðast uppfært ( Föstudagur, 24 Febrúar 2012 23:18 )
|
Upphitun fyrir bikarúrslitin á Ásvöllum kl.12:00 laugardag
Föstudagur, 24 Febrúar 2012 10:54
Jón Stefán Jónsson
Nú nálgast stóra stundin óðum hjá Haukafjölskyldunni, á laugardag kl.16:00 leikum við í bikarúrslitaleik karla í handbolta gegn Fram í Laugardalshöllinni. Á heimili okkar í Schenkerhöllinni á Ásvöllum verður mikið um dýrðir og hefst dagskráin kl.12:00 í hádeginu á leikdag. Boðið verður upp á leiki og sprell fyrir krakkana ásamt andlitsmálun. Haukabolir í barna- og fullorðinsstærðum verða seldir á 500 kr. og síðast en ekki sýst verður forsala aðgöngumiða á leikinn. Miðinn fyrir 13 ára og eldri kostar 1500 kr. en frítt er fyrir 12 ára og yngri. Að dagskrá lokinni um kl.14:30 býður Hafnarfjarðarbær stuðningsmönnum Hauka upp á fríar rútuferðir á leikinn og til baka á Ásvelli eftir leik! Mætum öll og eigum saman gleðilegan dag og styðjum strákana okkar til sigurs! 
Síðast uppfært ( Föstudagur, 24 Febrúar 2012 11:07 )
Unglingaflokkur kvenna í bikarúrslitum á sunnudag
Föstudagur, 24 Febrúar 2012 10:30
Jón Stefán Jónsson
Karlalið meistaraflokks Hauka verða ekki einu fulltrúar Hauka í bikarúrslitum um helgina því stelpurnar í unglingaflokki Hauka hafa einnig tryggt sig inn í bikarúrslitin. Andstæðingarnir verða FH svo þetta verður sannkallaður Hafnarfjarðarslagur. Þessi lið hafa á síðustu árum leikið í efstu deild í sínum aldursflokki og ávallt verið mikil barátta þegar þessi tvö frábæru handboltalið mætast. Nú verðum við að styðja við stelpurnar okkar og mæta í Laugardalshöll sunnudaginn 26/02 kl. 17:00 og hvetja þær til sigurs. Áfram Haukar! 
Síðast uppfært ( Föstudagur, 24 Febrúar 2012 10:44 )
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 11 |